17desember

Ismi

Hér var ég  búin að sjóða saman alveg hreint ömurlega færslu....svo las ég hana og sá  hversu ömurleg hún var og ákvað því að reyna að toppa mig í ömurlegheitum.

Það sem drifið hefur á daga mína er bíó, vinna,  pool, vinna, bíó, vinna, borða, vinna, pool, vinna, vinna,vinna og vinna.
Aldeilis skemmtilegt það. Reyndar hefur jólamánuðurinn liðið alveg ótrúlega hratt og jól eftir viku! ótrúlegt en satt. Stressið hefur verið í lágmarki, kannski vegna þess að í fyrsta skipti í hvað...1,2,3.......skrilljón ár er ég ekki í jólaprófum! TIL HAMINGJU ELÍSABET!
Einnig hef ég lokið jólagjafainnkaupum og fæ ég 25 kudos fyrir það. *Klapp Klapp*

Svo langar mig að biðja alla afsökunar, allasem ég hef verið leiðinleg við.

Þetta er eitt skrefið í 12 skrefa kerfinu sem ég er byrjuð í. Já þið heyrðuð rétt! Ég er komin í meðferð og afvötnun og allar græjur. Það gengur samt ekki vel, sérstaklega ekki núna um jólin. Sjúkdómurinn er þó ekki alkahólsimi, heldur Mandarín-og piparkökuismi. 

Já. Þessi sjúkdómur er ekkert grín! Ég bara get ekki hamið mig og ég týndi tölunni á hversu margar mandarínur ég er búin með 6 desember. Þá var ég komin uppí 1790 mandarínur. Sama vandamál með  piparkökurnar. Ég hætti að telja eftir 16 box þann 10 desember. Með þessu hef ég drukkið of mikið magn af jól í dós ( Christmas In A Can)




Nóg um sjúkdóma mína. Því ég hef komist að því að jólasveinninn er alfarið búinn að gleyma mér! Þennan fína skó setti ég útí glugga, en allt kemur fyrir ekki!
Ég er búin að vera rosa góð við alla hina krakkana og alltaf farið snemma (ehemmm) að sofa.
      Ég bara skil þetta ekki, og ef að þú lest þetta kæra Jólasveinaóféti, geturu bara gleymt því að ég kyssi þig, þegar ég hefi eignast eitt stykki stelpu sem á dúkku sem heitir Stína! Ég skal sko kalla á manninn minn ef þú svo mikið sem reynir að kyssa mig!

heyriru það! Þú hefur viku! viku! 

Ákvað svo að skella tveim  óskaplega skemmtilegum jólasveinamyndum hérna inn!


 Jæja...ég hef allavega ekki verið svona óþæg?

BÆTT VIÐ ÞANN 23.DES

Ehhhh? FOKK! SHIT SORRY ÞIÐ SEM SÁUÐ ÞESSA MYND SEM VAR HÉR....ÉG VAR AÐ FATTA ÞETTA NÚNA! SHIIII SJÚKLEGA JÓLALEG FÆRSLA SVO EINHVER SORA MYND? JIIII MINN EINASTI!

HAHAHHAHHAHAHAHHA ÉG SKIL EKKI ALVEG HVERNIG ÞESSI MYND KOMST HINGAÐ! ÉG ÆTLAÐI AÐ SETJA INN MYND AF DRUKKNUM JÓLASVEINI MEÐ HÚFU FYRIR LILLAMANN! EN ÞESSI GREINILEGA KOM Í STAÐINN! ÉG VEIT EKKI HVERNIG SAMT.....EITTHVAÐ DJÓK Á ÞESSUM FJÁRANS LINK

Nú loooooooofa ég að blogga fyrir jól!  Ég bara lofa!

En nú ætla ég að horfa aðeins meira á Black Books
17. desember 2007 klukkan 22:29
Elísabet
1 athugasemd

Auglýsing

Afmćliđ mitt:)

Meinen Meinenspeisen

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Klukkan