28október
Já sæl veriði! Nú er komið að nýrri færslu sem er góð tilbreyting (þó svo að það sé nú ekki langt síðan síðast!)
ég ætla að byrja á því að segja frá vikulokum
Fimmtudagur: Skellti mér á konukvöldið á Broadway í boði Heiðu, og þakka ég hér með fyrir gott boð! Þar var nú ágætis stemming og Laddi fór á kostum sem veislustjóri og brá sér í sín bestu hlutverk, persónulega fannst mér Elsa Lund og Magnús bóndi best. Herra Íslands keppendur stripluðust um á nærbrókum einum saman og var ekki laust við að fiðringur hefði farið um marga konuna.
Föstudagur: Við Elín skelltum okkur í heimsókn til Persídu og var þar mikið kjaftað og greinilegt að alltof langt var síðan við skelltum okkur til hennar , þar sem Sævar (aka, búbbíbúbbí) er komin með tennur og farinn að labba! Krúttibollan! Mikið var rætt og hlegið eins og venjulega þegar við komum saman og stefnt er á djamm næstu helgi
Laugardagur: Peningalausar og villuráfandi ungar stúlkur tvær fóru í bíltúr sem endaði í keiluhöllinni til að sýna listir okkar í pool....listir og ekki listir...gekk samt vel og við tókum 4 leiki. Við vorum komnar með þjálfara slash grúppíu sem var strákur sem hékk á glugganum og gaf til kynna hvað við vorum arfaslakar með afbragðsgóðu látbragði. Við skemmtum okkur konunglega við það og svo tók við 2 tíma bílaspjall. Gagn og gaman af því
SUnnudagur: Fór að mestu í leti, sukk(vínberjasukk) og sjónvarpsgláp.
Um hálf 10 pm ákváðum við Elín að endurtaka poolið og skelltum oss í keiluhöllina miklu til að stunda þá iðju. Að þessu sinni voru teknir 3 leikir og 2 þythokkíleikir. Mjöööög skemmtilegt og áhugavert.
En nú, kæru lesendur er komið að örlítið meira sjónvarpsglápi og svo í bælið.
Bless hress kex
Beta
23október
Jæja og jæja! hér er ég mætt á svæðið. Ég er veik, veik veik veik! Aðfaranótt laugardags varð ég veik, á laugardaginn var ég veikari, sunnudaginn veikust, mánudagin veik og svo í dag, Þriðjudag veik...á morgun skal ég í vinnuna, þessu hangsi nenni ég engan veginn. Reyndar.... reyndar lærði ég póker á meðan þessum veikindum stóð, og nú skora ég einhvern í póker! (ekki uppá pening, ég á ekki svoleiðis en nammi kemur vel til greina!)
´
Já nú ætla ég að segja frá dæmigerðum morgni hjá mér:
KL. 7.30 byrjar vekjaraklukkan mín að hringja og ég snúsa
KL.7.38 hringir vekjaraklukkan enn og ég snúsa
KL.7.46 hringir klukkan enn og aftur og ég drösla mér framúr, bursta tennur, þvæ mér í framan og skelli linsum
KL. 7.56 sest ég á rúmið og hugsa mig um í hvað ég á að fara þennan daginn.
KL 8.00 Klæði mig og hlusta á konuna við hliðina öskra á hundinn sinn Mosi? Mooooosi!!! Moooooooooooosi stopp!!!!! MOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOSSSSSSSIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
KL 8.05-8.10 labba ég út til að ná strætó.
Það sem fer mest í taugarnar á mér er kellingin við hliðina að öskra á hundinn. Þetta gerist á hverjum einasta morgni klukkan 8. Þá er hún að fara að skutla syni sínum í skólann (hann er 8mín að labba þangað....) Og tekur hundinn alltaf með. Hún opnar hurðina og hundurinn hleypur út og e-ð í burtu (skil hann svo sem alveg greyið) og hún stendur á orginu í allavega 5 mín. MMMOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOSSSSSSIIIIIIIIIII
Já ég varð aðeins að tuða yfir þessu.
Annars erum við Elín að hugsa um að skreppa örlítið til útlanda aftur, bara svona 10daga ferð til NY það gæti nú orðið ansi skemmtilegt, sérstaklega þar sem elín er skíthrædd við háar byggingar og ég við lyftur. Við ætlum að skoða Empire State... AHAHHAHAHHAHAH
Annars fer að líða að sumarbústaðarferð vinnunnar, það verður nú ansi skrautlegt svona miðað við seinasta staffadjamm, allir blindfullir útum allar trissur.
Reyndar gæti verið að ég fari e-ð út sömu helgi, svona yfir afmælið hennar múttu en það er eiginlega leyndarál ennþá og ekki alveg ákveðið.
en nóg í bili, nú loooofa ég að það líði ekki svona langt þar til næst...og þá skal ég skrifa skemmtilegri og skondari færslu! ég looooofa!
over and out