Strætó djöfulsins
Mig langar enn og aftur að segja ykkur frá því hversu hættulegt það er að missa af strætó um hálf 6 leytið í Engjunum. Ef það gerist má maður eiga mikla von á því að bilaða strætókonan keyri vagninn. Sú kvinna er alltaf sein og við erum líka að tala um sko verulega mikið og sein( hef orðið vitni af korteri!) Allavega ... það gerðist í dag. Við Loftur misstum af businum og eftir langa bið í rigningu og roki kom kella. Við urðum nú ekkert himinlifandi yfir því að sjá hana enda vorum við viss um að við ættum eftir að verða nær dauða en lífi við heimkomu. Sú var raunin. Kellingarandskotinn talaði í símann við krakkann sinn sem beið eftir múttu í Glæsibæ. Svo talaði hún meira í símann og stoppaði að lokum út í vegakanti til að tala meira (þá erum við komin með orsök seinleika hennar) Eftir smá tíma hætti hún í símanum en fór samt ekkert úr vegakantinum. Eftir smá stund kemur hin 6 ( sem sagt á leiðinni í Spöngina) og viti menn! það er maðurinn hennar hann stoppar líka og réttir henni lykla. Svo heldur ferðin áfram og enn er kella í símanum. Eftir stutta keyrslu stoppar hún í Foldunum og rýkur út úr vagninum öllum faþegum til mikillar undrunar. Hún hleypur e-ð eftir gangstéttinni en ákveður svo að hætta við að hætta þarna og sest aftur inn. Þegar þarna er komið við sögu er hún orðin sko alltof sein og ákveður þá að keyra bara hraðar... mjööööög sniðugt á strætó. Hún kom okkur nú nokkurnveginn heilum á húfi niður ártúsnbrekkuna en þar tekur ekkert betra við. Nokkrum sinnum er hún næstum búin að keyra á 3-inn sem var fyrir framan, með tilheyrandi bremsum og látum. Þegar við komum að klambratúni ákveður hún að gefa skít í þessa ferð og hendir okkur öllum í 3-inn sem hún reyndi að keyra niður 5 mínútum áður! svo bara fór hún ienhverja aðra leið á hlemm eða hvar sem hún átti að enda! Mín kenning er að hún hfai bara farið beint í Glæsibæinn að sækja barnið á businum!segðið svo að það sé ekki ævintýri að fara í strætó!






