Heiða sem er að vinna með mér kom með afar sérstakt nammi/snakk frá London. Nammi snakk gutlið voru þurrkaðar kryddaðar pöddur. Nánar tiltekið Krybbur (crickets) og svona maðkar... svona hvítir sem éta dautt hold.... mmmm
Stage one: Get the bloody bug out of the packet. Tók svoldinn tíma þar sem mig langaði ekkert til að snerta dauða krybbu með vængi og augu og allt tilheyrandi. En að lokum náði ég henni út. Stage one Complete
Stage two:Touch the bloody bug. Tók einnig slatta af tíma þar sem hún var viðbjóðsleg. Eftir smá pot og pat tókst mér að snerta hana í dálítinn tíma. Stage two complete.
Stage three:Pick up the bloody bug.Ok þetta var slatti langt ferli. En mér tókst þetta nú og ég hélt á vibbanum. Stage three complete.
Stage four:Eat the bloody bug. Já... þetta tók gífurlegan tíma og eftir að hafa fengið vatnsglas ákvað ég að láta vaða .....setti vibban upp í mig og tugði, Bragðaðist nú ekki illa... (enda kryddað) en samt var það frekar ógeðsleg tilhugsun að vera að bryðja einhverja pöddu með lappir og augu og læti. Stage four complete.
Eftir að hafa reynt að kyngja öllum líkamsleifum pöddunar afréð ég að ormarnir gætu ekki verið verri þannig að ég skellti einum upp í mig. Heiðar þorði ekki að éta þetta en eftir að ég fékk mér krybbu lagði hann í einn orm. Aumingi. Loftur sýndi og sannaði karlmennsku (og geðveiki) með því að skella þessu bara í túlann á sér án frekari málalenginga. Annars hefur enginn annar troðið þessu í sig. Im a Macho Macho WoMan
Mér datt í hug að segja ykkur frá mjöög svo skemmtilegu atviki. Svo bar til (um þessar mundir að boð kom....)að ungur maður frá Gambíu að nafni Mustapha varð sér út um msn-ið mitt og fór að spjalla við mig. Hann er vægast sagt lögulegur (NOT) vildi ólmur spjalla við mig um daginn og veginn. Þær samræður voru alveg óheyrilega leiðinlegar þannig að ég ákvað að spæsa þær svoldið upp. Ég sagðist vera gift 4 karlmönnum og væri að leita mér að þeim 5. Hann bar þá upp mjög svo rómantískt bónorð sem hljómaði svo: I will marry you if you want. Rosalegt bónorð ekki satt? Svo byrjaði þetta að vinda upp á sig. Hann vildi vita hvenær ég kláraði nám og svo átti ég bara að flytja til hans í Gambíu með mína 4 kalla og hafurtask. Þá fannst mér auðvitað kjörið að stríða honum aðeins meir.... bara pínuoggolítið og sagði honum að pabbi minn vildi vita hvað hann gæti boðið í mig hahahha ég sagði að pabbi vldi helst kýr og kindur. Hann sagði ok. Svo heyrði ég ekkert í honum lengi þar til að hann heimtaði að ég hringdi í sig.. ég lofaði að hringja en sveik það (ekki ætla ég að eyða milljón í að hringja til Gambíu) Hann varð hálf svekktur greyið en sagði mér svo að hann myndi bíða eftir að pabbi myndi bjóða honum hingað til Íslands til að ræða málin. Ég sagði að það gengi ekki. Svo leið og beið og ekkert heyrðist í Mustapha. Svo í gær fór boltinn að rúlla. Ég sagði honum að pabbi væri leiður á að bíða og að hann vildi ekki að ég giftist honum. Mustapha varð alveg brjál og sagði mér bara að leita að nýjum manni. Þá sagði ég að ég gæti unnið smá frest og að pabbi biði eftir e-maili. Mustapha áfréð að senda e-mail, en hann gæti það ekki í augnablikinu. Í núna er hann sem sagt að setja saman e-mail sem hann sendir honum pabba mínum (reyndar í þessu tilviki Elínu....) hann spurði mig fyrst núna til nafns maðurinn.... og sagðist ég heita Ellesta Von Haraladur og hann faðir minn heitir Haraldur von Harladur. Þessu trúði aumingja maðurinn.
Halló halló halló! Ég hef nú voða lítið bloggað svona upp á síðkastið en það hefur bara því miður ekkert merkilegt gerst fyrr en í gær.
Í gær skelltum við Elín okkur með Jakobi og tveim vinum hans á Argentínu að borða. Ekkertr slor skal ég ykkur segja, en auðvitað var sérdíll á matseðli og verði fyrir okkur enda tveir starfsmenn með í för (Jakob og annar vinurinn). Hér gefur að líta á matseðil kvöldsins á mínu eigins máli. (þar sem ég skildi ekki alveg allt sem maðurinn sagði)
Lystauki: Hrár nautakjötsbiti í skotglasi ásamt einhverju grænmeti og súrri sósu
Milliréttur: HUmar innpakkaður í ferskt penne pasta...svona mjúk ferskt pasta... ásamt einhverjum arfa og dassi af súkkulaði balsamik. mjööög gott
Forréttur: Hvítlauksmaríneraðir humarhalar á wasabifroðu og gúrku og engifersalati
Aðalréttur: 200gr. nautalund með bakaðri kartöflu og flambúrleruðu (eða hvernig sem maður segir það) grænmeti. einnig fengum við franskar kartöflur og hvítlaukssósu og chimi churi (eða fyrir idijóta: Simmi Súri)
Eftirréttur: Hávaxin (bara fyrir þig elín) Súkkulaði kaka með blautum innri botni (hahhaa) og vanilluís.
MMm þetta var geðveikt ... einnig fékk ég mjööög óvænt frá honum Frikka á barnum Pina Colada (ég kann ekki að gera svona fluff fyrir ofan n) en það var reyndar ekkert frá honum heldur bróður mínum. Síðan fékk ég líka bjór.... mjööööög gott.
í heild sinni var þetta brilljant matur (reyndar líka í bútum) og kostuðu herlaegheitin ekki nema 3900. kr á mann. Again Mjöööööööööög gott!
Jæja... ég bara varð að setja þetta hérna inn... þetta er hinn indverski Michael Jackson! og hann er sko ... jahhh....? hvað er hann? það er ekki til orð yfir þetta....allavega hérna er slóðin góða http://www.youtube.com/watch?v=LbvP7dT3Dx0
Ok fínt það vill bara enginn fara með mér til Chiiiiiiiiiicaaaaaago! en það er allt í lagi því ég ætla bara á CARLING FESTIVAL í Leeds eða Reading í ágúst! þar eru mergjaðar hljómsveitir á borð við vini mína í Fall Out Boy og Rauðum Heitum Chilie pipar. Maður sko er í tjöldum takk fyrir og getur svo fengið að hitta vini sína (fall out boy)
Enn ég lærði sko nýjan Brand Ara í dag. Spurningin er hver þessi Brandur Ari hafi verið? Hann hefur allavega verið alveg geðviekt fyndinn fyrst hann er í orðabók í dag. Ég stefni á að komast í orðabókina einn daginn.... veit ekki hvað ég á að þýða en það kemur í ljós. Þessi Brandur Ari er rosa fyndinn og ég ætlaði aldrei að fatta hann (sem gefur til kynna hversu mikill vitleysingur ég er...)
Pete and Repeat were in a boat. Pete jumped in the sea. Who was left in the boat?
svarið er auðvitað repeat og þá er Brandur Ari endurtekinn.... eitthvað sem ég fattaði ekki ... ég var búin að sjá fjandans gátu Brand Aran ógeðslega oft og skildi ekkert í því af hverju hann var alltaf endurtekinn.... svo fattaði ég hann og hló með sjálfri mér..... eftir fokking 10 mín.
Mother fucker þessi Brandur Ari
Peace out! eða ekki peace... það er ofnotað ...hmmm skítur og skömm: Elísabet
p.s ég perlaði voðalega fínt písmerki í leikskólanum! ég er dulllleg stelpa
Í morgun fann ég gallabuxur í skápnum mínum sem ég var bara búin að setingleyma. Þær eru voða fínar sem ég keypti í Hollandi, svaka fallegar sko... en jáhh ég ákvað að skella mér í þessum buxum í vinnuna í dag. Ég fór í strætó og þegar ég ætlaði að setjast þá heyrðist hátt og myndarlegt *RIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIPPP* Ég dó næstum en jiii minn konan fyrir aftan mig sprakk en ég settist bara eins og ekkert hefði í skorist. Þegar ég kom í vinnuna sá ég mér til mikillar skelfingar að buxurnar rifnuðu vinstra megin frá saumi til saums rétt undir rassvasanum almáttugur! hahha en vegna snjókomu í morgun ákvað ég að skella mér í leggings undir buxurnar...Annars hefði önnur rasskinnin barasta lafað í gegnum gatið!
það sem gerist ekki fyrir mann
Eitt enn Djöfull hata ég auglýsinginu frá Símanum um þarna safnið! Einhver gella sem situr í rólu og syngur ooooo ég haaaaaata þetta lag: Minningar sem hafa föööölnað, sem hafa fölnað, föööölnað! ooo juuuuukkkk
Og annað Skyndilega fann ég út að hann Pete Wentz úr Fall out boy er voðalega fínn agalega lekker ungur maður. Elín er ekki sammála en þá þarf ég ekki að rífast við hana um hver fær hann.
Jæja.... mér datt í hug að segja aðeins frá Glasgow ferðinni sem farin var fyrir viku síðan..
Ég sem sagt vaknaði á föstudeginum 2. mars klukkan 4 am eftir 2 tíma svefn. Ekki gott. Mér var illt í maganum, en égt bara bjóst við því að það væri vegna þess að ég fönkera ekki svo snemma morguns. En það var ekki málið... ég var veik. Við eyddum föstudeginum í að versla en mér leið alltaf verr og verr en vildi ekkert segja. Það var ekki fyrr en um 5 leytið pm að ég var gjörsamlega að deyja og skreið upp í rúm um 6 pm og hugsaði með mér að ég gæti lagt mig í allavega klukkutíma áður en við ætluðum út að borða. Nei.Sú varð ekki raunin og klukkan hálf 7 var hringt og sagt að lagt væri af stað út að borða. Klukkan korter í sjö leið mér enn jafn illa og því ákvað ég að fara ekki með að borða voða góðan indverskan mat og sofnaði hálf 9 yfir 20.þætti af Ugly Betty(ég vissi ekkert hvað var í gangi) FJÖR. Á laugardeginum vaknaði ég heldur betur frískari og dreif mig í búðir. KLukkan 6 var ég gjörsamlega að deyja aftur og skildi mömmu mína eftir í BOOTS sem er reyndar ekki góð hugmynd því að hún getur endalaust eytt... Svo lagði ég mig aðeins og fór í sturtu og var með ágæta heilsu til að fara út að borða. Við fórum á Ítalskan stað og ég ákvað að fá mér MIXED SEEFOOD PASTA sem þýðir allt annað á Íslandi. Hér fær maður smá humar rækjur og kannki hörðudisk og krækling. Þegar þjónninn var búinn að vefja álpappírnum af disknum mínum blöstu við heilu fjölskyldurnar af KOLKRÖBBUM! Með allar sínar 8 lappir og sogskálar! jiii þetta var eins og fjöldamorðsgröf eftir helförr kolkrabbana! Jiii mamma drapst næstum úr viðbjóði. Áhugavert!
Það gerðist ekki meira svona markvert í þessari för. The End
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá er komin svona myndasíða! hún er þarna.... þarna við hliðina.. þið hljótið að finna... en það er ekki komið neitt svaðalegt magn af myndum þar sem ég var að gera hana...
Ég og mamma skruppum aðeins út í apótek hérna um hálf tólf.(um kvöldið) Við vorum bara rétt búnar að stíga út úr bílnum og mamma læsti á leiðinni upp tröppurnar þegar ungur og ógæfusamur drengstauli reif í hurðarhúninn á bílnum hennar mömmsu. Ég (valkyrjan) Strunsaði niður og gargaði á drenginn hvort ég gæti aðstoðað hann eitthvað og muldraði undir niðri "get ég kannski opnað bílinn fyrir þig?" auðvitað brá honum örlítið en ekki mikið enn fór samt ekki frá bílnum heldur kraup og fylgdist með leigara* einum hvítum á lit. Ég labbaði niður nokkur þrep í viðbót mjöööög svo ógnandi (örugglega ekki samt, en það kryddar upp á söguna) og þá skyndilega stóð ógæfusami pilturinn upp og hljóp eins og djöfullinn væri á hælum hans (en eins og ætla mátti var það leigarinn en ekki djöfullinn sem var á eftir honum). Leigarinn sem sagt brunaði á eftir honum og drengurinn hvarf. þegar við vorum búnar í apótekinu var leigarinn að hringsóla um bílaplanið... my guess: Drengurinn borgaði ekki fyrir farið... suss um svei ógæfusömu unglingar.
Geta má þess að móðir mín stóð stjörf á meðan.... hugrakka Elísabet! ég gæti bara byrjað í Heros!
svo er það nú ekki búið. Á leiðinni heim elti svo einhver bíll okkur .... að mömmu sögn ég held að það búi alveg fleira fólk í þingholtunum en við.... en samt... hann hagaði sér undarlega... keyrði á hinni akreininni og var svona semi við hliðina á okkur. Again mamma panikkaði og tók einhvern svaka hring til að "hrista hann af sér" ein búin að horfa aðeins of mikið á Taggart....
og.... því til stuðnings: við vorum að skoða kort af Glasgow (enda er förinni heitið í svaðalega verslunarferð þangað á föstudaginn) Á kortinu sá mamma mín lögreglustöð og sagði: hey ætli Taggart sé þarna?
Á ég að þora með henni út? ætli hún spyrji um Taggart.
* leigari: leigubíll, ekki leigumorðingi.... þó að sagan hefði verið mun meira æsandi þá. ekki samt kynferðislega æsandi... bara svona plain æsandi...