HUgrenning:
Shoe.




Hér var ég búin að sjóða saman alveg hreint ömurlega færslu....svo las ég hana og sá hversu ömurleg hún var og ákvað því að reyna að toppa mig í ömurlegheitum.
Það sem drifið hefur á daga mína er bíó, vinna, pool, vinna, bíó, vinna, borða, vinna, pool, vinna, vinna,vinna og vinna.
Aldeilis skemmtilegt það. Reyndar hefur jólamánuðurinn liðið alveg ótrúlega hratt og jól eftir viku! ótrúlegt en satt. Stressið hefur verið í lágmarki, kannski vegna þess að í fyrsta skipti í hvað...1,2,3.......skrilljón ár er ég ekki í jólaprófum! TIL HAMINGJU ELÍSABET!
Einnig hef ég lokið jólagjafainnkaupum og fæ ég 25 kudos fyrir það. *Klapp Klapp*
Svo langar mig að biðja alla afsökunar, allasem ég hef verið leiðinleg við.
Þetta er eitt skrefið í 12 skrefa kerfinu sem ég er byrjuð í. Já þið heyrðuð rétt! Ég er komin í meðferð og afvötnun og allar græjur. Það gengur samt ekki vel, sérstaklega ekki núna um jólin. Sjúkdómurinn er þó ekki alkahólsimi, heldur Mandarín-og piparkökuismi.
Já. Þessi sjúkdómur er ekkert grín! Ég bara get ekki hamið mig og ég týndi tölunni á hversu margar mandarínur ég er búin með 6 desember. Þá var ég komin uppí 1790 mandarínur. Sama vandamál með piparkökurnar. Ég hætti að telja eftir 16 box þann 10 desember. Með þessu hef ég drukkið of mikið magn af jól í dós ( Christmas In A Can)![]()

Nóg um sjúkdóma mína. Því ég hef komist að því að jólasveinninn er alfarið búinn að gleyma mér! Þennan fína skó setti ég útí glugga, en allt kemur fyrir ekki!
Ég er búin að vera rosa góð við alla hina krakkana og alltaf farið snemma (ehemmm) að sofa.
Ég bara skil þetta ekki, og ef að þú lest þetta kæra Jólasveinaóféti, geturu bara gleymt því að ég kyssi þig, þegar ég hefi eignast eitt stykki stelpu sem á dúkku sem heitir Stína! Ég skal sko kalla á manninn minn ef þú svo mikið sem reynir að kyssa mig!
heyriru það! Þú hefur viku! viku!
Ákvað svo að skella tveim óskaplega skemmtilegum jólasveinamyndum hérna inn!
Jæja...ég hef allavega ekki verið svona óþæg?
BÆTT VIÐ ÞANN 23.DES
Ehhhh? FOKK! SHIT SORRY ÞIÐ SEM SÁUÐ ÞESSA MYND SEM VAR HÉR....ÉG VAR AÐ FATTA ÞETTA NÚNA! SHIIII SJÚKLEGA JÓLALEG FÆRSLA SVO EINHVER SORA MYND? JIIII MINN EINASTI!
HAHAHHAHHAHAHAHHA ÉG SKIL EKKI ALVEG HVERNIG ÞESSI MYND KOMST HINGAÐ! ÉG ÆTLAÐI AÐ SETJA INN MYND AF DRUKKNUM JÓLASVEINI MEÐ HÚFU FYRIR LILLAMANN! EN ÞESSI GREINILEGA KOM Í STAÐINN! ÉG VEIT EKKI HVERNIG SAMT.....EITTHVAÐ DJÓK Á ÞESSUM FJÁRANS LINK
Nú loooooooofa ég að blogga fyrir jól! Ég bara lofa!
Já sæl veriði! Nú er komið að nýrri færslu sem er góð tilbreyting (þó svo að það sé nú ekki langt síðan síðast!)
ég ætla að byrja á því að segja frá vikulokum
Fimmtudagur: Skellti mér á konukvöldið á Broadway í boði Heiðu, og þakka ég hér með fyrir gott boð! Þar var nú ágætis stemming og Laddi fór á kostum sem veislustjóri og brá sér í sín bestu hlutverk, persónulega fannst mér Elsa Lund og Magnús bóndi best. Herra Íslands keppendur stripluðust um á nærbrókum einum saman og var ekki laust við að fiðringur hefði farið um marga konuna.
Föstudagur: Við Elín skelltum okkur í heimsókn til Persídu og var þar mikið kjaftað og greinilegt að alltof langt var síðan við skelltum okkur til hennar , þar sem Sævar (aka, búbbíbúbbí) er komin með tennur og farinn að labba! Krúttibollan! Mikið var rætt og hlegið eins og venjulega þegar við komum saman og stefnt er á djamm næstu helgi
Laugardagur: Peningalausar og villuráfandi ungar stúlkur tvær fóru í bíltúr sem endaði í keiluhöllinni til að sýna listir okkar í pool....listir og ekki listir...gekk samt vel og við tókum 4 leiki. Við vorum komnar með þjálfara slash grúppíu sem var strákur sem hékk á glugganum og gaf til kynna hvað við vorum arfaslakar með afbragðsgóðu látbragði. Við skemmtum okkur konunglega við það og svo tók við 2 tíma bílaspjall. Gagn og gaman af því
SUnnudagur: Fór að mestu í leti, sukk(vínberjasukk) og sjónvarpsgláp.
Um hálf 10 pm ákváðum við Elín að endurtaka poolið og skelltum oss í keiluhöllina miklu til að stunda þá iðju. Að þessu sinni voru teknir 3 leikir og 2 þythokkíleikir. Mjöööög skemmtilegt og áhugavert.
En nú, kæru lesendur er komið að örlítið meira sjónvarpsglápi og svo í bælið.
Bless hress kex
Beta
Jæja og jæja! hér er ég mætt á svæðið. Ég er veik, veik veik veik! Aðfaranótt laugardags varð ég veik, á laugardaginn var ég veikari, sunnudaginn veikust, mánudagin veik og svo í dag, Þriðjudag veik...á morgun skal ég í vinnuna, þessu hangsi nenni ég engan veginn. Reyndar.... reyndar lærði ég póker á meðan þessum veikindum stóð, og nú skora ég einhvern í póker! (ekki uppá pening, ég á ekki svoleiðis en nammi kemur vel til greina!)
´
Já nú ætla ég að segja frá dæmigerðum morgni hjá mér:
KL. 7.30 byrjar vekjaraklukkan mín að hringja og ég snúsa
KL.7.38 hringir vekjaraklukkan enn og ég snúsa
KL.7.46 hringir klukkan enn og aftur og ég drösla mér framúr, bursta tennur, þvæ mér í framan og skelli linsum
KL. 7.56 sest ég á rúmið og hugsa mig um í hvað ég á að fara þennan daginn.
KL 8.00 Klæði mig og hlusta á konuna við hliðina öskra á hundinn sinn Mosi? Mooooosi!!! Moooooooooooosi stopp!!!!! MOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOSSSSSSSIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
KL 8.05-8.10 labba ég út til að ná strætó.
Það sem fer mest í taugarnar á mér er kellingin við hliðina að öskra á hundinn. Þetta gerist á hverjum einasta morgni klukkan 8. Þá er hún að fara að skutla syni sínum í skólann (hann er 8mín að labba þangað....) Og tekur hundinn alltaf með. Hún opnar hurðina og hundurinn hleypur út og e-ð í burtu (skil hann svo sem alveg greyið) og hún stendur á orginu í allavega 5 mín. MMMOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOSSSSSSIIIIIIIIIII
Já ég varð aðeins að tuða yfir þessu.
Annars erum við Elín að hugsa um að skreppa örlítið til útlanda aftur, bara svona 10daga ferð til NY það gæti nú orðið ansi skemmtilegt, sérstaklega þar sem elín er skíthrædd við háar byggingar og ég við lyftur. Við ætlum að skoða Empire State... AHAHHAHAHHAHAH
Annars fer að líða að sumarbústaðarferð vinnunnar, það verður nú ansi skrautlegt svona miðað við seinasta staffadjamm, allir blindfullir útum allar trissur.
Reyndar gæti verið að ég fari e-ð út sömu helgi, svona yfir afmælið hennar múttu en það er eiginlega leyndarál ennþá og ekki alveg ákveðið.
en nóg í bili, nú loooofa ég að það líði ekki svona langt þar til næst...og þá skal ég skrifa skemmtilegri og skondari færslu! ég looooofa!
over and out
Hejallehúppa
Ég er bara ekkert viss um að ég sé skrifandi lengur, það er svo langt síðan ég hef bloggað.
Einhvernveginn finnst mér eins og allavegana 2 færslur hafi byrjað á svipuðum orðum... skemmtileg tilviljun sjáðiði til.
Sko það sem geerst hefur síðan í Outlandinu er nú ekki mikið:
Eftir 3 vikna leit að farangrinum mínum, poppaði hann skyndilega upp...áhugavert!
Ég er búin að vera að vinna og vinna og vinna....til að getað borgað Outlandaskuldir ahhaha
Ég fór í afskaplega skemmtilegt grillpartý og djamm með vinnunni sem að vanda endaði í totallý rugli og skemmtilegum umræðum um Snöggar U-beygjur undir sæng leikskólastjórans, ís, og 26% fitu
Svo átti ég afmæli þann 24. september eins og síðasliðin 21. ár.Nú er maður orðinn gamlingi og tími til kominn að panta elliheimilispláss. Gaman var að því, ég var að vinna allan daginn, en ég fékk þessa fínu kórónu með 30 ára gamalli mynd af Harrison Ford íklæddum sundskýlu einni fata. Sú mynd er búin að halda á mér hita í kuldanum!
Einnig fékk ég flunkunýja sæng frá foreldrum mínum og bróður, enda sú gamla orðin ansi hreint sköllótt.
Nú, þá er alltsaman upptalið held ég bara og ég þakka fyrir mig í bili. Lifið heil og allt það og ég lofa að koma með færslu sem verður skemmtilegri og áhugaverðari innan skamms!